-o- - Hausmynd

-o-

Af erfiðum viðskiptavinum...

Í gær fór ég í Rúmfatalagerinn. Meðan ég synti kafsund í sturtuhengjapakkningum og lá við köfnun úr ilmkertastækju gall eftirfarandi við í skrækróma starfsbarni í hátalarakerfinu:

"VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ! ÞAÐ ER STRANGLEGA BANNAÐ AÐ LEIKA SÉR Í RÚLLUSTIGANUM!!"

Ég gat ekki annað en hlegið með sjálfri mér. Nú geri ég fastlega ráð fyrir að það hafi verið börn viðskiptavina sem gerðu sér glaðan dag í rúllustiganum. En myndin sem kom upp í hugann af þreytulegum flíspeysumæðrum í brjáluðum rúllustigaeltingaleik er pínu skondin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Næst þegar að ég fer í Rúmfó ætla ég að leika mér í rúllustiganum!

Ragga (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 10:23

2 Smámynd: Sigga

Ég leik mér alltaf í rúllustigum. Allavega fæ ég alltaf smá fiðring í magann, því ég er ennþá hrædd við að festast.

Sigga, 20.2.2008 kl. 12:27

3 Smámynd: Fröken M

pant ver'ann

Fröken M, 21.2.2008 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband